Podcast
Sjöan
Sjöan er fótboltahlaðvarp Jóhanns Berg Guðmundssonar og Harðar Snævars Jónssonar.
Jóhann Berg er fyrrum landsliðsmaður Íslands með yfir 100 A-leiki og hefur spilað meðal annars með AZ, Charlton og Burnley. Hörður Snævar er ritstjóri http://433.is og einn þekktasti umræðumaður íslensks fótbolta.
Saman fara þeir yfir helstu deildir í evrópu sem og aðrar deildir sem stundum gleymast. Fá íslenska atvinnumenn til að útskýra sína deild, daglegt líf og það sem gerist á og utan vallar. Þegar það á við er stutt stopp heima: Besta deildin og landsliðið.
Nafnið kemur af númerinu 7 sem Jóhann Berg hefur borið í áratug. Hlaðvarpið er samt tvíeyki: Jói opnar dyrnar, Hörður heldur umræðunni skarpri.
Nýr þáttur vikulega á Spotify, Apple Podcasts og YouTube.
- Episodes
- 5
- Releases
- Weekly
- Typical length
- 1 hr 6 min
- On air since
- 2026
- Latest episode
- 1 day ago
Episodes
5 episodes, newest first
-
1 hr 14 min
Sjöan - Að flýja stríð með fjölskylduna og Andri Lucas gestur
Season 1, Episode 5
Show notes
Jóhann Berg er eini Íslendingurinn sem hefur spilað í Sádí Arabíu. Ræðum þann hluta af ferlinum og svo hvernig það er að flýja stríð með fjölskylduna. Andri Lucas Guðjohnsen er svo í mjög áhugaverðu spjalli, er hann næsti íslendingurinn sem fer í ensku úrvalsdeildina?
-
1 hr 6 min
Sjöan - Gylfi Sig vill alltaf meira og hvað gerist þegar þjálfari er rekinn?
Season 1, Episode 4
Show notes
Gylfi Þór mætir í þáttinn og fer yfir allt það helsta. Förum yfir ástandið hjá Manchester United, skoðum Liverpool og ræðum margt fleira. Þjálfaramálin á Íslandi aðeins skoðuð.
-
1 hr 1 min
Sjöan - Alfreð Finnboga gestur - Toddi gat ráðið Freysa
Season 1, Episode 3
Show notes
Alfreð Finnbogason er fyrsti gestur Sjöunnar, hann fer ítarlega yfir málin. Þá er farið yfir enska boltann og aðeins kíkt í þá Bestu.
Sjöan er í boði Lengjunnar, Peroni 0,0 prósent og Númereitt.is
-
1 hr 8 min
Sjöan - Er í lagi að landsliðsmenn helli í sig?
Show notes
Íslenskir landsliðsmenn gómaðir á barnum, Manchester City og stóri dómur JBG yfir því máli. AskBigBerg og fleira gott í þessum öðrum þætti af Sjöunni.
-
59 min
Sjöan - Skórnir á hilluna
Season 1, Episode 1
Show notes
Fyrsti þáttur af Sjöunni - Jóhann Berg Guðmundsson hefur lagt skóna á hilluna. Jóhann mun í vetur fræða íslenskt knattspyrnuáhugafólk um leikinn sem allir elska. 102 landsleikir, spilaði á Íslandi, Hollandi, Englandi og í sandinum.
Soccer lists
More Soccer shows picked out from the charts
More in Soccer
Placed highest on Apple Podcasts' Soccer chart right now